Mikil fjölgun var á iðkendum hjá félaginu s.l. vetur og höfum við því bæði fjölgað hópum hjá okkur og fjölgað þjálfurum. Lenka Ptáčníková stórmeistari kvenna verður áfram yfirþjálfari hjá félaginu en Dagur Ragnarsson alþjóðlegur meistari og landsliðsmaður í skák bætist við hópinn. Þeim til aðstoðar verður Daníel Friðrik Hjartar sem einmitt er uppalinn í unglingastarfi TG.

Við skiptum krökkunum upp í fjóra hópa hjá okkur í vetur: 

  • Byrjendaflokkur – 4-5 ára: Krakkar sem eru að taka sín fyrstu skref í skákinni en eru áhugasamir. 
  • Lengra komnir byrjendur 1-3 bekkur: Krakkar sem eru búnir að ná tökum á mannganginum og farnir að geta mátað.
  • Framhaldsflokkur: Krakkar sem þekkja vel allar reglur og eru byrjaðir að keppa á mótum.
  • Úrvalshópur: Þeir sem eru lengst komnir og keppa reglulega á mótum. Valið er í þennan hóp af þjálfurum.

Æfingarnar fara fram á 3. hæð í Miðgarði 

Þriðjudagur

16:25-17:25 Lengra komnir byrjendur (1-3 bekkur)

17:30-18:30 Framhaldshópur (4-10. bekkur)

Fimmtudagur

 17:30 til 19:00. Úrvalshópur

Laugardagur

11:40 til 12:20 Byrjendaflokkur (Leikskólahópur - 4-5 ára) 

12:25 til 13:25. Lengra komnir byrjendur (1-3. Bekkur)

13:30 til 15:00 Framhalds- og Úrvalshópur

Ef vafi er á í hvaða hóp á að skrá barnið þá er best að hafa samband við yfirþjálfara,
gegnum tölvupóst: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða síma: 699 7963

Fyrsta æfing verður laugardaginn 30. ágúst.

ATHUGIÐ AÐ TAKMARKAÐUR FJÖLDI ER Í SUMA HÓPANA OG ÞVÍ MIKILVÆGT AÐ SKRÁ SIG SEM FYRST