Lög TG
Samþykkt á aðalfundi 1982 og breytt 2024 (áður 2022).
1. grein.
Félagið nefnist "Taflfélag Garðabæjar" og hefur aðsetur í Garðabæ. Skammstöfun félagsins er TG. Tilgangur félagsins er að auka þekkingu og áhuga á manntafli með hverjum þeim hætti er stjórn félagsins og aðalfundir ákveða.
- grein.
Aðalfund félagsins skal halda að vori í lok vetrarstarfs. Aðalfundur hefur úrskurðarvald í öllum málum félagsins. Á aðalfundi skal kosin stjórn, gerð grein fyrir fjárreiðum félagsins, rædd starfsskýrsla fráfarandi stjórnar, lagabreytingar og önnur þau mál tekin fyrir sem félagsmenn óska að ræða.
Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum og hafa atkvæðisrétt fullgildir félagar sem eru skuldlausir við félagið. - grein.
Stjórn skal skipuð fimm til sjö stjórnarmönnum. Kosning fer þannig fram að kosinn er formaður fyrst og svo gjaldkeri, síðan aðrir stjórnarmenn. Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins og ræður öllum málum milli aðalfunda. - grein.
Stjórn skal skipa æfingastjóra til að hafa yfirumsjón með skákæfingum og mótsstjóra til að hafa yfirumsjón með framkvæmd skákmóta á vegum félagsins. Stjórn er einnig heimilt að skipa trúnaðarmenn í skólum á félagssvæðinu og annars staðar þar sem ástæða þykir til. - grein.
Stjórn TG setur sér siða- og jafnréttisreglur sem taka mið af aga- og siðareglum Skáksambands Íslands og kröfum Garðabæjar til félaga sem njóta styrkja frá bænum. Reglurnar skulu endurskoðaðar árlega og uppfærðar ef þörf er á. - grein
Komi til þess að Taflfélagi Garðabæjar verði slitið skulu eignir félagsins fara í umsjón Íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar (ÍTG) næstu 10 ár nema ábyrgur aðili takist á hendur það verkefni að endurreisa félagið innan þess tíma. - grein.
Lögum þessum má eingöngu breyta á aðalfundi og hefur hann úrskurðarvald í öllum vafaatriðum um túlkun þeirra.